Sunday, November 26, 2006

Jólastemning, Everglades og fleira

Nú er langri helgi að ljúka hjá okkur Ernu. Hún tók sér frí á miðvikudaginn, á fimmtudag og föstudag var svo frí í vinnunni vegna Thanksgiving. Þetta var því fimm daga helgi hjá okkur. Gerðum ýmislegt en slöppuðum þó aðallega af. Vorum boðin í mat hjá samstarfsfélaga Ernu á Thanksgiving og var það ansi notalegt verður að segjast. Fórum eitthvað í kringlur þeirra Miamibúa og upplifðum jólastemninguna sem er nú búin að taka gjörsamlega yfirhöndina á þeim bæjunum. Lukum svo helginni í dag með ferð í Everglades-þjóðgarðinn þar sem var vart þverfótað fyrir krókódílum. Kíkið endilega á myndasíðuna okkar en þangað er nú kominn heljarstór skammtur af myndum frá síðustu dögum.

Wednesday, November 22, 2006

Vínsmökkun

Létum loks verða af því að fara í vínsmökkun í mjög skemmtilegri búð/bar hér í hverfinu okkar. Fórum þarna eitthvert helgarkvöldið fyrir nokkru, áttum þá góða kvöldstund og skráðum netfangið okkar á einhvern lista. Höfum síðan verið að fá tölvupósta um vínsmökkunarkvöld á þriðjudögum en létum ekki verða að því að fara fyrr en í gær. Þetta er mjög skemmtilega útfærð sérverslun með vín sem er opin allan daginn og eitthvað frameftir eða þar til fólk hættir að drekka. Í búðinni er mikið og gott úrval léttvína og osta. Hægt að mæta á kvöldin og fá sér eðalvín á barnum eða bara verslað góða flösku á daginn. Svo bjóða þau manni að velja osta og ýmislegt góðgæti í kælinum og herlegheitin eru svo sett á disk svo hægt sé að gæða sér á því með víninu. Heima myndi svona búð ekki geta starfað vegna hinna súrrealísku einokunar ríkisisins á sölu áfengis. Hvenær ætlar annars hinn "frjálslyndi" Sjálfstæðisflokkur að breyta því fyrirkomulagi og leyfa fólki að kaupa vín og bjór annarsstaðar en hjá ríkinu?

Nema hvað þarna hittum við ansi skemmtilegt fólk. Spjölluðum m.a. við konu sem hafði búið í San Fransisco og gaf hún okkur ýmis góð ráð varðandi hvað væri gaman að gera þar. Erum nefnilega að spá í ferðalag þangað í janúar. Lungað úr kvöldinu fór svo í spjall við c.a. fimmtug hjón, Lindu og John, sem búa hér í hverfinu. Þau reka fyrirtæki sem semur lög fyrir ýmar aulýsingar svo sem City Furniture og fleiri fyrirtæki. Ákaflega áhugavert fólk. Við ræddum m.a. við þau um stjórnmál í Bandaríkjunum, norræna goðafræði, Ísland og margt fleira. Þau sögðu okkur að þegar þau fluttu hingað til Hollywood fyrir 20 árum hafi ástandið verið allt annað en það er í dag. Það var víst þannig að hægt hefði verið að stunda bowling á Hollywood Boulevard án mikilla vandræða, svo dauður var þessi bær þá. Engin umferð og lítið af fólki. Núna er hverfið hinsvegar allt að lifna við og þau reikna með að sú þróun haldi áfram. Núverandi borgarstjórnarmeirihluti sé að taka allt í gegn hér í hverfinu og liður í því var t.d. að loka Greyhound stoppistöð sem var hér áður. Slíkum stoppistöðum fylgir víst oft útigangsfólk og annar "ruslaralýður". Þessi aðgerð borgaryfirvalda undirstrikar annars hversu mikil skipting er hér í US. Ríka fólkið vill helst ekki sjá fátæktina og ömurlegheitin og beitir ýmsum leiðum til að bægja því frá sér. Þessi aðgerð varðandi Greyhoundstöðina er ansi lýsandi fyrir það hvernig vandamálunum er ýtt eitthvert annað. Fólk vill ekki sjá eymdina og heldur sig bara í sínu fínu hverfum og hættir sér aldrei inní hverfi þar sem ástandið er slæmt.

Við erum náttúrulega hluti af þessari "firringu" því við höfum bara búið í mjög flottum og vernduðum hverfum. Fólk hugsar náttúrulega fyrst og fremst um öryggi sitt og það er einfaldlega staðreynd að sum hverfi eru hreinlega stórhættuleg, þar er há glæpatíðni og mikil fátækt. Eitt hverfi í Miami er kallað "Dauðaþríhyrningurinn" en þar eru morð ansi algeng. Okkur langar ekkert sérstaklega mikið að fara þangað. Lái manni hver sem vill........

Fengum nafnspjald hjá þeim hjónum og er stefnt á að fara út að borða saman einhverntíman á næstunni. Svo er John víst að spila í jazzbandi á írskum pöbb hér handan við götuna þriðja hvern föstudag og aldrei að vita nema maður skelli sér þangað næst og sjái hversu fær hann er.

P.S. Báðar myndirnar eru teknar í vínbúðinni góðu. Á neðri myndinni eru Cyndy (barþjónn), John og Linda.

Monday, November 20, 2006

Kayaknámkeið og fleira

Búið að vera ansi notalegt hjá okkur hér í S-Flórída undanfarna daga. Við höfum náð að gera ýmislegt skemmtilegt síðan síðast og sennilega stendur kayakjnámskeiðið á laugardaginn uppúr ásamt ferð til West Palm Beach sama dag. Á myndasíðunni okkar eru nú komnar fullt af myndum frá síðustu dögum og ætla ég hreinlega að beina ykkur þangað því myndir segja jú oft meira en mörg orð (sérstaklega þegar þeim fylgir dágóður skýringatexti)........

Thursday, November 16, 2006

Grannar

Frá því við fluttum hingað í blokkina hafa okkur nokkrum sinnum borist auglýsingar um samkundur á vegum skemmtinefndar hússins. Það eru þá yfirleitt "happy hour" á einhverjum barnum í nágrenninu þar sem blokkarbúar hittast, drekka, borða og spjalla saman. Við höfum ekki komist hingað til á slíkan "hitting" en í gær ákváðum við að skella okkur og sjáum ekki eftir því. Náðum að mæta fyrst allra og fara síðust eins og okkur einum er lagið.

Það virtist vera sem annar hvor maður og kona á svæðinu væru í fasteignabransanum en fólk var annars að bralla ýmislegt. T.d. spjölluðum við mikið við augnlækni sem var í eldri kantinum, karlhjúkku o.fl. En við fíluðum samt best tvo samkynhneygða karla sem eru frá NY og eru í tískubransanum. David og Anthony heita þeir. David vinnur í NY fyrir GAP við að koma af stað fjórðu línunni frá þeim. Hann býr í NY en á hús hér í nágrenninu. Anthony vinnur fyrir Perry Ellis hér í S-Florida og hann á íbúð hér í blokkinni. Þeir félagar entust jafn lengi og við og undir lokin var ákveðið að hittast við sundlaugina á laugardaginn en þá ætla þeir félagar að bjóða okkur uppá kokteila. Anthony ku ansi góður í gerð slíkra göróttra drykkja.

Komumst svo að því hjá skemmtinefndinni að það verður haldið jólapartý í desember og þá ætlar Anthony að bjóða liðinu í fordrykk á undan. Við erum því komin í einskonar Melrose place stemningu hér í Holly. Skál fyrir því!

P.S. Höfðum ekki myndavélina með og því leitaði ég að "neighbors" og "funny" í google image og fann þessa ágætu mynd. Fannst hún ansi skondin ;)

Monday, November 13, 2006

Erna tekur af skarið!

Þá er komið að því. Undur og stórmerki gerast. Erna dró upp bloggpennan í kvöld og skrifaði myndatextann við nýja myndabloggið sem má nálgast hér. Ég hef persónulega ekki haft mikinn tíma í bloggið undanfarna daga vegna anna í námi og því hafa færslurnar verið eitthvað færri. En nú er kominn þessi líka liðstyrkur sem vonandi mun halda áfram að glæða lífi í þennan vettvang ;)

En kíkið endilega á þetta "sveinsstykki" hennar Ernu.

kk.,
Sigfús

Thursday, November 09, 2006

Úrslit kosninganna

Þá er það ljóst! Demókratar náðu báðum deildum þingsins og er það mikill sigur fyrir þá og jafnframt gríðarlegt umhugsunarefni fyrir repúblikana. Úrslitaríkið var Virginia og var svo mjótt á munum þar (aðeins 7000 atkvæði) að úrslit lágu ekki fyrir fyrr en í gær. Reyndar á repúblikaninn í því ríki enn eftir að viðurkenna ósigurinn þegar þetta er skrifað og því kannski of snemmt að lýsa yfir sigri demókrata í ríkinu en ég ætla samt að leyfa mér að ganga út frá því sem vísu. Demókratar, og tveir óflokksbundnir bandamenn þeirra, hafa nú nauman meirihluta í Öldungadeild Bandaríkjaþings, 51-49. Demókratar fengu um 30 þingsæta meirihluta í Fulltrúadeildinni og hafa því náð meirihluta í báðum deildum í fyrsta sinn í 12 ár. Íraksstríðið vóg þungt í hugum kjósenda í þessum kosningum (orðin ansi mikil andstaða við það hér) og einnig siðferðismál en hver skandallinn hefur rekið annan hjá repúblikönum undanfarið. Kynlífshneyksli manna sem hafa gefið sig út fyrir að vera miklir siðapostular, Abramoff hneykslið og margt fleira. Í útgönguspám var fólk m.a. spurt hvað réði mestu um þeirra atkvæði og skoraði þetta tvennt þá mjög hátt.

Viðbrögð Bush fólust í því að reka Rumsfeld varnarmálaráðherra, arkítektinn á bakvið Íraksstríðið. Nú tekur við miklu erfiðari tími hjá Búski því hann hefur búið við þann lúxus hingað til að hafa þingið á sínu bandi og getað þar með farið öllu sínu fram (eða allt að því). Við taka málamiðlanir sem að ég einhvernvegin efast um að hann sé góður í. Þetta leiðir allt saman hugann að því þegar Davíð og Halldór ákváðu sín á milli að styðja þetta stríð. Það hljóta allir að vera sammála um það í dag að það var algjörlega misráðið hjá þeim félögum og þingflokkum þeirra, sem reyndar fengu bara að vita um það eftirá. Áhugaverð er sú staðreynd að helstu stuðningsmenn þessa stríðs, Tony Blair, Rumsfeld, Davíð og Halldór eru allir hættir í pólitík eða við það að fara að hætta. Eini sem enn er að er Bush sem reyndar á eftir að eiga erfiða daga í starfi út þetta kjörtímabil. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að Bush verði dæmdur af sögunni á topp 10 lista yfir verstu forseta Bandaríkjanna ef hann nær þá ekki bara því fyrsta. Hvort Davíðs og Halldórs bíði svipuð örlög ætla ég ekki að fullyrða um en þessi gjörningur þeirra var ansi svartur blettur á þeirra stjórnmálaferli og verður lengi í minnum hafður.

Fyrir þá sem vilja kynna sér úrslit kosninganna frekar bendi ég á kosningavef NY-Times.

ATH: Þetta er fyrsti rammpólitíski pistillinn á þessari síðu og vil ég árétta að hann er einungis í mínu nafni en ekki Ernu ;)

Monday, November 06, 2006

Kosningar 2006

Það er ekki hægt annað en að stjórnmálafræðingur búsettur í Bandaríkjunum minnist aðeins á þær mikilvægu kosningar sem hér fara fram á morgun. Við Erna höfum horft á nokkra spjallþætti og lesið blöð og vitum því sitthvað um hvað hér er rætt. Á morgun er sem sagt kosið til fulltrúardeildarinnar og þriðjungar sæta í öldungadeildinni auk þess sem kosið er um ríkisstjóra í um 36 fylkjum. Kosningaspár benda til þess að þetta verði spennandi kosningar þar sem líklegast munu demókratar ná yfirhöndinni í fulltrúadeildinni í fyrsta skiptið síðan 1994. Ef það gengur eftir mun Bush eiga heldur erfiðara um vik með að koma stefnu sinni (hvað svo sem fólki kann að finnast um hana) fram. Hér í Flórída er Jeb Bush að láta af störfum sem ríkisstjóri eftir átta ára valdasetu. Charlie Crist mun reyna að verja vígi repúblikana og hans helsti keppinautur er demókratinn Jim Davis. Crist er búinn að vera lengi í pólitíkinni í Flórida, m.a. verið þingmaður í öldungadeild ríkisins (hvert ríki hefur sitt eigið þing fyrir þá sem það ekki vita) og menntamálaráðherra (Flórída). Jim Davis er búinn að vera þingmaður í fulltrúadeild bandaríkjaþings frá árinu 1996.

Það sem mér finnst standa uppúr þegar horft er yfir sviðið eru neikvæðar auglýsingar og almennt neikvæð kosningabarátta. Af einhverjum orsökum hefur kosningabarátta í Bandaríkjunum þróast í þessa átt og vona ég innilega að sama þróun verði ekki heima á Íslandi. Ekki er hægt að horfa á sjónvarp án þess að reglulega birtist óhróður um einhvern frambjóðandann. Og allt er notað. Þannig keyra repúblikanar t.d. á því að Jim Davis hafi slæma mætingu í þinginu og segja hann ekki mæta í vinnuna. Einhver frambjóðandinn á að vera báðum megin við borðið, bæði lobbýisti og þingmaður o.sfrv. Það er ekki nóg með að þetta sé stöðugt á skjánum heldur lenti Erna í því um daginn að hringt var í hana í vinnuna og á hinni línuni var vélræn rödd (tölvuforrit) sem sagði henni hversu slæmur einhver frambjóðandinn ætti að vera. Það versta er að þetta virkar víst. A.m.k. er það vonlaust að ætla að sleppa því að taka þátt í þessu ef andstæðingurinn byrjar.

Ég horfði á mjög áhugaverða heimildamynd um þetta efni síðasta vetur, Taking on the Kennedys, þar sem fylgst er með repúblikana sem er að bjóða sig fram gegn Patrick Kennedy. Þessi repúblikani var læknir, virtist heiðarlegur útí gegn og vildi alls ekki fara út í neikvæða kosningabaráttu. Kennedyinn byrjaði hinsvegar á slíkri herferð og var umfjöllunarefnið slys sem repúblikaninn hafði lent í á námsárunum og fengið bætur í kjölfarið. Í auglýsingum Patricks var það látið líta þannig út að hann hafi svindlað bótunum út og fjármagnað þannig námið sitt. Ótrúlega lúalegt verður að segjast. Nema hvað repúblikaninn streitist á móti og vill ekki leggjast jafn lágt og andstæðingurinn. Starfsfólk kosningaskrifstofunnar leggur hinsvegar hart að honum að svara í sömu mynt því fylgið var að hrynja vegna auglýsinga Patricks. Á endanum lætur hann frambjóðandinn heiðarlegi undan og samþykkir auglýsingaherferð sem er á sama plani og herferð Kennedys. Þar var rætt við gamla konu sem hafði leigt Patrick íbúð á námsárunum og fullyrti hún að hinni ríki Kennedy hefði aldrei borgað leiguna. Og viti menn! Jú, fylgið rauk upp í kjölfarið og minnstu munaði að hann næði að fella Patrick. Sem sagt ákaflega áhugaverð mynd sem ég mæli eindregið með. Gefur góða innsýn í hvernig kaupin gerast á eyrinni í bandarískri pólitík.

Annað sem er ákaflega áhugavert er það að kastljósið beinist nær eingöngu að frambjóðendum risaflokkanna tveggja, demókrata og repúblikana. Það eru samt fullt af öðrum flokkum og einstaklingum að bjóða sig fram en þeir fá yfirleitt ekki að koma fram í spjallþáttum og kappræðum. Ég sá reyndar einn þátt þar sem þriðji kandídatinn til ríkisstjóra í Flórida fékk náðarsamlegast að vera með og náði hann að bauna aðeins á þetta fáránlega fyrirkomulag og veitti risunum tveimur harða samkeppni.

Annars virðist ekki mikil umræða um pólitík annarsstaðar en í fjölmiðlunum. Erna segir t.d. lítið talað um stjórnmál í vinnunni. Það er e.t.v. útaf einhverri almennri amerískri kurteisi um að vera ekki að troða skoðunum sínum uppá samstarfsfólkið sitt en það virðist líka bara vera almennt áhugaleysi á þessum málum hér. Það er kannski að hluta til útaf því að núverandi valdhafar hafa eru þar sem þeir eru.....

Thursday, November 02, 2006

Íshokkí í Flórída

Já, það er spilað íshokkí hér í S-Flórída. Er það ekki álíka súrrealískt og baðströnd á Vatnajökli? En allavegana, okkur var boðið á íshokkíleik í NHL deildinni á þriðjudaginn (halloweenkvöldinu) og var það í fyrsta skiptið sem við hjónin höfum farið á slíkan leik. Raúl og Marianna hafði áskotnast fjórir miðar og buðu þau okkur að koma með. Heimaliðið hetir því fróma nafni Pardusdýrin (The Panthers) og það atti kappi við Hákarlarna (The Sharks) frá Sacramento. Er skemmst frá því að segja að leikurinn var í járnum allan tíman, okkar menn komust yfir 1-0, hákarlarnir jöfnuðu síðan nokkru seinna og var staðan jöfn þar til 1-2 mínútum fyrir lok leiks þegar hinnir vel tenntu hákarlar náðu að pota inn einu marki og unnu þar með leikinn (djööööö). Ansi skemmtilegt kvöld samt og alltaf gaman að fara á leiki hér í US, stemmningin er mjög góð og þessar hallir náttúrulega risavaxnar.

Í stuttu máli hefur dagskráin okkar undanfarna daga annars verið á þessa leið:

Á fimmtudaginn fyrir viku bauð einn eigandi Holland & Knight okkur út að borða og í fordrykk heim til sín á undan. Tilefnið var að sænskur strákur sem hafði verið að vinna hjá skrifstofunni var mættur á svæðið ásamt spússu sinni og má því segja að það hafi verið einskonar norrænt þema. Magnað að koma heim til þeirra eins og þið sjáið ef þið kíkið í heimsókn á myndasíðuna okkar.

Á föstudaginn bauð skrifstofa Ernu bekk úr fátæku hverfi í Fort Lauderdale í heimsókn í Halloween-stemmningu. Þetta er hluti af verkefni sem skrifstofan er tekur þátt í og hafa þau t.d. farið að lesa fyrir krakkana í skólanum og. Erna tekur þátt í þessu verkefni og finnst það mjög gefandi. Um kvöldið kíktum við Erna svo á happy hour á mexíkanskan stað hér í hverfinu og fengum okkur eðal margarítur. Röltum svo um hverfið og rákumst á vínbúð sem er einnig bar á kvöldin. Þar er hægt að velja sér osta og vín og sitja að sumbli og ræða um gæði vína. Komumst að því að á þriðjudögum er ókeypis vínsmökkun í þessari búð og aldrei að vita nema maður skelli sér einhverntíman. Fórum svo á aðal stuðstaðinn í hverfinu (Spice)þar sem við hittum hann Bigga og vinkonu hans. Þetta er svona "latino" staður þar sem bæði föngulegir karlar og konur dansa uppi á barborðinu í eggjandi klæðnaði en þó allt innan siðgæðismarka. Þessir dansarar eru meira svona til að koma liðinu í stuð. Við Erna dönsuðum í smá tíma þarna á dansgólfinu og var þetta bara ansi gaman.

Á laugardaginn byrjuðum við daginn á því að keyra í norðvestur í stærsta mollið hér á svæðinu, Sawgrass Mills. Ansi mikil upplifun að koma þangað, mollið er gríðarlega stórt og minnir meira á heilt bæjarfélag heldur en verslunarmiðstöð. Náðum aðeins að skoða um 10% af mollinu og verðum því að fara aftur og taka allan daginn í það ;)

Sunnudaginn byrjuðum á strandferð. Alltaf gaman að skreppa hér niður á strönd og ganga um og skoða mannlífið. Gengum rösklega eftir stígnum og settumst svo niður á hóteli sem bauð uppá sunday bröns og jazz-band. Mæli eindregið með því að fólk þefi upp svona sunday-bröns þegar það kemur til US ansi góðir dílar oft á tíðum. Við fórum svo í eins og eina Costco ferð og sídegis fórum við í heimsókn til litlu fjölskyldunnar í S-miami. Tókum út stöðuna á litla drengnum og borðuðum með Önnu Maríu og Gulla. Alltaf gaman að hitta þau.

Fullt af myndum á myndasíðunni okkar fyrir þau ykkar sem hafið áhuga.